1 Samuel Fyrri Samúelsbók
1 Maður er nefndur Kís. Hann var úr Benjamín og var sonur Abíels, Serórssonar, Bekóratssonar, Afíasonar, sonar Benjamíníta nokkurs, auðugur maður.
2 Hann átti son, er Sál hét, fyrirmannlegan og fríðan. Enginn af Ísraelsmönnum var fríðari en hann. Hann var höfði hærri en allur lýður.
3 Ösnur Kíss, föður Sáls, týndust, og Kís sagði við Sál, son sinn: "Tak með þér einn af sveinunum og farðu og leitaðu að ösnunum."
4 Og þeir fóru um Efraímfjöll og þeir fóru um Salísaland, en fundu þær ekki. Síðan fóru þeir um Saalímland, en þær voru þar eigi. Þá fóru þeir um Benjamínsland, en fundu þær ekki.
5 En er þeir voru komnir í Súf-land, þá sagði Sál við svein sinn, þann er með honum var: "Kom þú, við skulum snúa við, svo að faðir minn fari ekki að undrast um okkur, í stað þess að hugsa um ösnurnar."
6 Sveinninn svaraði honum: "Sjá, í borg þessari er guðsmaður einn, og er maðurinn frægur. Allt rætist, sem hann segir. Nú skulum við fara þangað; má vera að hann segi okkur, hvaða leið við eigum að halda."
7 Sál sagði við hann: "Sjá, ef við förum, hvað eigum við þá að færa manninum? Því að brauðið er þrotið í malpokum okkar og gjöf höfum við enga að færa guðsmanninum. Hvað höfum við?"
8 Þá svaraði sveinninn Sál aftur og mælti: "Sjá, ég hefi hjá mér fjórðung úr silfursikli. Hann ætla ég að gefa guðsmanninum, til þess að hann segi okkur, hvaða leið við eigum að halda."
9 (Fyrrum komust menn svo að orði í Ísrael, þá er þeir gengu til frétta við Guð: "Komið, vér skulum fara til sjáandans!" Því að þeir, sem nú eru kallaðir spámenn, voru fyrrum kallaðir sjáendur.)
10 Þá sagði Sál við svein sinn: "Þú hefir rétt að mæla. Kom þú, við skulum fara!" Síðan fóru þeir til borgarinnar, þar sem guðsmaðurinn var.
11 Er þeir voru að ganga upp stíginn upp að borginni, hittu þeir stúlkur, sem gengu út að sækja vatn, og sögðu við þær: "Er sjáandinn hér?"
12 Þær svöruðu þeim og sögðu: "Já, hann er rétt á undan ykkur. Hann er alveg nýkominn til borgarinnar, því að lýðurinn ætlar í dag að færa sláturfórnir á fórnarhæðinni.
13 Óðara en þið komið inn í borgina, munuð þið finna hann, áður en hann gengur upp á fórnarhæðina til að eta, því að lýðurinn etur ekki fyrr en hann kemur, af því að hann blessar fórnirnar; eftir það eta þeir, sem boðnir eru. Og gangið nú upp þangað, því að einmitt nú munuð þið finna hann."
14 Síðan gengu þeir upp til borgarinnar. Þegar þeir komu inn í borgina, sjá, þá gekk Samúel út á móti þeim og ætlaði upp á fórnarhæðina.
15 Nú hafði Drottinn, daginn áður en Sál kom, opinberað Samúel þetta:
16 "Í þetta mund á morgun mun ég senda til þín mann úr Benjamínslandi, og skalt þú smyrja hann til höfðingja yfir lýð minn Ísrael, og hann mun frelsa minn lýð af hendi Filistanna, því að ég hefi séð ánauð míns lýðs, og kvein hans hefir borist til mín."
17 En er Samúel sá Sál, sagði Drottinn við hann: "Þetta er maðurinn, sem ég sagði um við þig: ,Hann skal drottna yfir mínum lýð.'"
18 Sál gekk þá til Samúels í miðju borgarhliðinu og mælti: "Seg mér, hvar á sjáandinn heima?"
19 Samúel svaraði Sál og mælti: "Ég er sjáandinn. Gakk á undan mér upp á fórnarhæðina. Þið skuluð eta með mér í dag, en á morgun snemma mun ég láta þig fara og fræða þig um allt það, er þú ber fyrir brjósti.
20 Og að því er snertir ösnurnar, sem töpuðust hjá þér fyrir þremur dögum, þá vertu ekki áhyggjufullur út af þeim, því að þær eru fundnar. En hver mun hljóta allar hnossir Ísraels, hver nema þú og öll ætt föður þíns?"
21 Sál svaraði og mælti: "Er ég ekki Benjamíníti, kominn af einni af hinum minnstu kynkvíslum Ísraels, og ætt mín hin lítilmótlegasta af öllum ættum Benjamíns kynkvíslar? Hví mælir þú þá slíkt við mig?"
22 Samúel tók Sál og svein hans og leiddi þá inn í matsalinn, og hann vísaði þeim til sætis efst meðal boðsmannanna, en þeir voru um þrjátíu manns.
23 Og Samúel sagði við matsveininn: "Kom þú nú með stykkið, sem ég fékk þér og sagði þér að taka frá."
24 Þá bar matsveinninn fram bóginn og rófuna og setti fyrir Sál. Og Samúel mælti: "Sjá, það sem afgangs varð, er nú sett fyrir þig. Et, því að á hinum ákveðna tíma var það geymt þér, þá er sagt var: Ég hefi boðið fólkinu!" Og Sál át með Samúel þann dag.
25 Og þeir gengu niður af hæðinni ofan í borgina, og var búið um Sál á þakinu, og lagðist hann til svefns.
26 Þegar lýsti af degi, kallaði Samúel á Sál uppi á þakinu og mælti: "Rís nú á fætur, svo að ég geti fylgt þér á leið." Þá reis Sál á fætur, og þeir gengu báðir út, hann og Samúel.
27 En er þeir voru komnir út fyrir borgina, sagði Samúel við Sál: "Segðu sveininum að fara á undan okkur, - og hann fór á undan - en statt þú kyrr, svo að ég megi flytja þér orð frá Guði."