Home |  | Audio |  | Index |  | Verses

Psalms Sálmarnir

Chapter: 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97 98 99 100 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 111 112 113 114 115 116 117 118 119 120 121 122 123 124 125 126 127 128 129 130 131 132 133 134 135 136 137 138 139 140 141 142 143 144 145 146 147 148 149 150

1 Til söngstjórans. Á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. (12:2) Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.
2 (12:3) Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir.
3 (12:4) Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð,
4 (12:5) þeim er segja: "Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?"
5 (12:6) "Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp," segir Drottinn. "Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana."
6 (12:7) Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.
7 (12:8) Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur.
8 (12:9) Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna.

Top |  | Next Chapter  |  | Index |  | Home
Full online version here [with search engine, multilingual display and audio Bible]