Home |  | Audio |  | Index |  | Verses

Psalms Sálmarnir

Chapter: 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97 98 99 100 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 111 112 113 114 115 116 117 118 119 120 121 122 123 124 125 126 127 128 129 130 131 132 133 134 135 136 137 138 139 140 141 142 143 144 145 146 147 148 149 150

1 Til söngstjórans. Sálmur Davíðs, (51:2) þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu. (51:3) Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.
2 (51:4) Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni,
3 (51:5) því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.
4 (51:6) Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir.
5 (51:7) Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.
6 (51:8) Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!
7 (51:9) Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.
8 (51:10) Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið.
9 (51:11) Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.
10 (51:12) Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.
11 (51:13) Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.
12 (51:14) Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,
13 (51:15) að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.
14 (51:16) Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.
15 (51:17) Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!
16 (51:18) Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum - annars mundi ég láta þær í té - og að brennifórnum er þér ekkert yndi.
17 (51:19) Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.
18 (51:20) Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!
19 (51:21) Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

Top |  | Next Chapter  |  | Index |  | Home
Full online version here [with search engine, multilingual display and audio Bible]